Best WordPress Theme based on Material Design - Materialize is a freemium WordPress theme developed by myThem.es

Heimsljós í Langholtskirkju 22. mars kl 16:00

Heimsljós er kórverk fyrir blandaðan kór, 2 einsöngvara og hljómsveit. Tónverkið er skrifað sem sálumessa og hverfist um texta úr Heimsljósi nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Heimsljós var samið af Tryggva M. Baldvinssyni fyrir fyrir kór, einsöngvara og hljómsveit í tilefni 50 ára afmælis Söngsveitarinnar Fílharmóníu árið 2010 og frumflutt þá. Verkið fær nú að hljóma aftur í tilefni af stórafmæli tónskáldsins. Einsöngvarar verða Hallveig Rúnarsdóttir og Eggert Reginn Kjartansson. Stjórnandi er Magnús Ragnarsson.

Söngsveitin Fílharmónía er 70 manna blandaður kór og hefur verið starfandi frá árinu 1960. Kórinn hefur flutt fjölbreytta tónlist frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar og heldur reglulega tónleika. Síðastliðið starfsár flutti kórinn Messu heilagrar Sesselju eftir Haydn ásamt einsöngvurum og hljómsveit við mikla hrifningu áheyrenda og Stabat Mater eftir Antonín Dvorák og hlaut lof fyrir. Í febrúar s.l. hélt Söngsveitin Fílharmónía tónleika með sígildri efnisskrá m.a. Sólhjartarljóði úr Óttusöngvum á vori Jóns Nordal. Í júní n.k. mun kórinn koma fram með útvarpshljómsveit BBC og flytja norræn kórverk undir stjórn Önnu-Mariu Helsing. Kórinn hefur á undanförnum misserum unnið að hljóðritunum á íslenskri kórtónlist og gefið út á helstu tónlistarstreymisveitum. Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson.

Miðasala er á www.tix.is og við innganginn.

Sólhjartarljóð í Langholtskirkju 1. febrúar kl 17:00

Söngsveitin Fílharmónía heldur tónleika laugardaginn 1. febrúar kl.17.00 undir yfirskriftinni Sólhjartarljóð. Þar er vísað í Sólhjartarljóð úr Óttusöngvum á vori eftir Jón Nordal sem kemur til með að hljóma ásamt fleiri klassískum perlum, innlendum og erlendum. Einsöngur er í höndum Herdísar Önnu Jónasdóttur og Pétur Nói Stefánsson leikur á orgel. Stjórnandi er Magnús Ragnarsson.

Almennt miðaverð er kr. 3500, öryrkjar og eldri borgarar kr. 2500, frítt fyrir 14 ára og yngri

Söngsveitin Fílharmónía er 70 manna blandaður kór og hefur verið starfandi frá árinu 1960. Kórinn hefur flutt fjölbreytta tónlist frá öllum tímabilum tónlistarsögunnar og heldur reglulega tónleika. Síðastliðið starfsár flutti kórinn Messu heilagrar Sesselju eftir Haydn ásamt einsöngvurum og hljómsveit við mikla hrifningu áheyrenda og Stabat Mater eftir Antonín Dvorák og hlaut lof fyrir. Þann 22. mars n.k. mun kórinn flytja Heimsljós eftir Tryggva M. Baldvinsson sem hann samdi í tilefni af 50 ára afmæli kórsins og frumflutt var árið 2010. Kórinn hefur á undaförnum misserum unnið að hljóðritunum á íslenskri kórtónlist og gefið út á helstu tónlistarstreymisveitum. Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson.

Miðasala er á www.tix.is og við innganginn.

Aðventutónleikar Söngsveitarinnar Fílharmóníu í Langholtskirkju 7. desember kl. 17.00

Söngsveitin Fílharmónía heldur sína árlegu aðventutónleika laugardaginn 7. desember kl. 17 í Langholtskirkju. 

Flutt verða fjölbreytt aðventu- og jólalög frá ýmsum tímum. Meðal annars verða frumflutt tvö ný jólalög; Kveiki á einu kerti nú eftir Þóru Marteinsdóttur og Allir litlir englar eftir Tryggva M. Baldvinsson sem hann samdi sérstaklega fyrir Söngsveitina Fílharmoníu. 

Einsöngvari á tónleikunum verður Íris Björk Gunnarsdóttir sópran og Elísabet Waage leikur á hörpu.

Stjórnandi er Magnús Ragnarsson.

Miðasala er á www.tix.is og við innganginn.

Stabat Mater í Langholtskirkju 17. mars kl. 20.00

Söngsveitin Fílharmónía flytur hið stórbrotna tónverk Stabat Mater eftir Antonín Dvorák í Langholtskirkju þann 17. mars 2024. Til að flytja verkið hefur söngsveitin fengið til liðs við sig píanóleikarann Elena Postum og fjóra einsöngvara, þau Hallveigu Rúnarsdóttur, Hildigunni Einarsdóttur, Gissur Pál Gissurarson og Odd Arnþór Jónsson. Stjórnandi kórsins er Magnús Ragnarsson.

Miðasala á tix.is