Söngsveitin Fílharmonía býður upp á opið raddpróf sunnudaginn 30. ágúst kl. 13 í Langholtskirkju.
Raddprófið er fyrir alla sem hafa áhuga á að syngja í kór og allar raddtegundir eru velkomnar. Ekki þarf að skrá sig, bara mæta og vera búin að hita röddina upp.
Nóg af spennandi verkefnum bíða okkar í vetur, meðal annars 9. sinfónía Beethovens, söngur með Todmobile, aðventutónleikar og vortónleikar.
Verið hjartanlega velkomin!


