Árlegir jólatónleikar Fílharmóníunnar verða haldnir laugardaginn 6. desember kl. 17.00 í Langholtskirkju.
Dagskráin er af fjölbreyttum toga og spannar bæði klassísk jólalög og nýleg. Þá verður frumflutt nýtt jólalag eftir Tryggva M Baldvinsson, Alltaf þegar eru jól.
Sem áður fyrr er það fegurðin og notalegheitin sem svífa yfir vötnum á jólatónleikum Fílharmóníunnar og munu tónleikarnir ylja fólki um hjartarætur og fylla sálarró í aðdraganda jóla.
Einsöngvari er Jóhann Kristinsson og Elísabet Waage leikur undir á hörpu. Magnús Ragnarsson stjórnar
Aðgangseyrir er 3900 kr. en 2900 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Frítt inn fyrir 14 ára og yngri.
Miðasala er á tix.is en einnig verða miðar seldir við innganginn.
Söngsveitin Fílharmónía og Hljómsveitin Mandólín leiða saman hesta sína á ný og halda tónleika í Langholtskirkju föstudaginn 10. október kl. 20.00.
Sveitirnar léku síðast saman á tónleikum í Tjarnarbíó við 2016 við frábærar undirtektir gesta og gangandi og er sannarlega kominn tími á að leikurinn verði endurtekinn.
Dagskráin er á léttum nótum en verður þó fjölbreytt og spannar allt frá íslenskum barnalögum til Klezmer-tónlistar og auk gamalla kunningja frá fyrri tónleikum.
Miðar eru seldir við innganginn og kostar 3500 kr inn en 2500 fyrir eldri borgara og öryrkja. Frítt fyrir 14 ára og yngri.
Inntökupróf fyrir Söngsveitina Fílharmóníu verða haldin sunnudaginn 31. ágúst kl. 13.00 í Langholtskirkju. Viðburðarík dagskrá er hjá Fílharmóníunni komandi vetur. Þar má nefna hausttónleika, ásamt hljómsveitinni Mandólín; þátttöku á tónleikum Todmobile – Ég heyri raddir; og síðast en ekki síst þátttöku á flutningi “1000 manna Sinfóníunnar” eftir Gustav Mahler á Listahátíð 2026. Kórinn getur bætt við sig nokkrum nýjum röddum og eru því öll áhugasöm eindregið hvött til þess að mæta í raddprufur.
Söngsveitin fílharmonía heldur vortónleika þriðjudaginn 3. júní kl 20 í Langholtkirkju. Um miðjan júní heldur kórinn til Englands og m.a. syngja með BBC Concert Orchestra í Snape Maltings og með Imperial College Chamber Choir í London.
Á vortónleikunum mun kórinn flytja lögin sem flutt verða á Englandi, m.a. íslensk og norræn ættjarðarlög. Miðasala er við innganginn. Frítt fyrir 14 ára og yngri, öryrkja og ellilífeyrisþega.