Vetrarstarfið fer vel af stað og nú fer Sveitin í ferðalag!
Laugardaginn 28. september liggur leiðin í Mýrdalinn þar sem sungnir verða tónleikar í Skeiðflatarkirkju kl. 16. Kórinn mun hafa stutta viðkomu í Sögusetrinu á Hvolsvelli, skoða Njálurefilinn og taka lagið fyrir saumafólkið! Þá kemur kórinn við á Skógum, skoðar byggðasafnið og tekur lagið í kirkjunni. Það eru mörg verkefnin sem kórin tekur þátt í og hér má sjá brot af því sem á dagskránni er fram til áramóta.
- Í október tekur Söngsveitin þátt í söngdagskrá í Hörpunni sem Landsamband blandaðra kóra stendur fyrir. Þar mun kórinn syngja, einn og með öðrum kórum í Norðurljósum og Eldborgarsal.
- Flutt verður klezmertónlist í Áskirkju ásamt Ragnheiði Gröndal og hljómsveit Hauks Gröndal í nóvember.
- Kórinn mun að sjálfsögðu syngja inn jólafriðinn í desember, í Kristskirkju fyrir jól og í Háteigskirkju milli jóla og nýárs.